Revit MEP með MagiCAD Electrical
Á þessu námskeiði verður farið í ferla sen viðkoma hönnun í Revit með MagiCAD. Námskeiðið byrjar á því að fengið er módel í hendurnar frá arkitekt og byggingarverkfræðingi. Það er svo verkefnið lagnahönnuðar / verkfræðings / verktakans að búa til lagnalíkan. Það munu eiga sér stað sjálfstæð hönnunarvinna sem og undirbúningur fyrir prentun.
Markmið
Markmið námskeiðsins er að koma þátttakendum af stað með verkefni byggða á líkani eða teikningu frá arkitekt og burðarþolshönnuði. Eftir að hafa lokið námskeiðinu, mun þátttakandinn hafa öðlast þekkingu á að teikna raflagnir með Revit MEP og MagiCAD og hvernig samvinna með arkitektum og verkfræðingum fer fram í Revit.
- Kynning á BIM
- Tenging (link) Revit líkana
- Notkun á notendaviðmótum
- Samþætting við Dialux
- Raflagnateikningar
- Þverskurðir, skýringarmyndir og úrtök
- Samstilling líkana
- Uppsetning fyrir prentun
Þátttakendur námskeiðs fá:
- Hádegismat, hressingar í pásum og kaffi/te.
- Aðgang að tölvu með öllum nauðsynlegum hugbúnaði
- Aðgang að vefkennslusvæðinu My NTI Academy
- Stafrænt vottorð að námskeiði loknu.
Hjá My NTI Academy færð þú aðgang að:
- Námsefni á stafrænu formi.
- Yfirsýn á öll þín stafrænu vottorð.
- Gagnlegar upplýsingar um hugbúnaðinn þinn og fleira tengdu.
- Reglulega uppfærð tips&tricks frá sérfræðingum NTI.
Praktískar upplýsingar
Dagsetning: 24. 25. janúar og .14 15. 21. febrúar
Lengd: 4+1 dagur, kl. 9:00 - 16:00 (2 dagar Revit MEP + 2 dagar MagiCAD Electrical + 1 dagur MagiCAD Common - Online).
Staðsetning: NTV (Kjallari), Hlíðasmári 9, Kópavog.
Verð: kr. 14.500,- DKK (u.þ.b. kr. 270.000,- ISK).
Sérkjör fyrir viðskiptavini NTI, námsfólk og atvinnuleitendur.
Styrkir: Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeið hjá NTI.
Námsefni og kennsla á ensku.
Verum í góðu sambandi
Sláðu á þráðinn eða sendu línu
Sölustjóri NTI á Íslandi
Reykjavík - Ísland
+354 6998202