Skip to main content Search


Revit MEP með MagiCAD Ventilation

Á þessu námskeiði verður farið í ferla sen viðkoma hönnun í Revit með MagiCAD. Námskeiðið byrjar á því að fengið er módel í hendurnar frá arkitekt og byggingarverkfræðingi. Það er svo verkefnið lagnahönnuðar / verkfræðings / verktakans að búa til lagnalíkan. Það munu eiga sér stað sjálfstæð hönnunarvinna sem og undirbúningur fyrir prentun.

 

Markmið

Markmið námskeiðsins er að koma þátttakendum af stað með verkefni byggða á líkani eða teikningu frá arkitekt og burðarþolshönnuði. Eftir að hafa lokið námskeiðinu, mun þátttakandinn hafa öðlast þekkingu á að teikna raflagnir með Revit MEP og MagiCAD og hvernig samvinna með arkitektum og verkfræðingum fer fram í Revit. Þetta er verklegt námskeið með bóklegu ívafi.

  • Kynning á BIM
  • Tenging (link) Revit líkana
  • Notkun á notendaviðmótum
  • Lagnaleiðir og burðir
  • Samþætting með SystemairCAD
  • Stærðar- og hljóðútreikningar
  • Snið, skýringarmyndir og magntökur
  • Sérsniðun á 2D og 3D sjónræningu
  • Uppsetning fyrir prentun

Þátttakendur námskeiðs fá:

  • Hádegismat, hressingar í pásum og kaffi/te.
  • Aðgang að tölvu með öllum nauðsynlegum hugbúnaði
  • Aðgang að vefkennslusvæðinu My NTI Academy
  • Stafrænt vottorð að námskeiði loknu.

Hjá My NTI Academy færð þú aðgang að:

  • Námsefni á stafrænu formi.
  • Yfirsýn á öll þín stafrænu vottorð.
  • Gagnlegar upplýsingar um hugbúnaðinn þinn og fleira tengdu.
  • Reglulega uppfærð tips&tricks frá sérfræðingum NTI.

Praktískar upplýsingar

Dagsetning: Skráning stendur yfir!

Lengd: 4+1 dagur, kl. 9:00 - 16:00 (2 dagar Revit MEP + 2 dagar MagiCAD Ventilation + 1 dagur MagiCAD Common - Online).

Staðsetning: Ármúla 8 - 2.hæð til hægri, 108 Reykjavík + Online

Verð: kr. 14.500,- DKK (u.þ.b. kr. 306.000,- ISK).
Sérkjör fyrir viðskiptavini NTI, námsfólk og atvinnuleitendur.

Styrkir: Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeið hjá NTI.

Námsefni og kennsla á ensku.

course-500x375.jpg

Taka frá sæti eða skráning á námskeið hér!

Verum í góðu sambandi

Sláðu á þráðinn eða sendu línu

Árni Guðmundur Guðmundsson

Sölustjóri NTI á Íslandi

Reykjavík - Ísland

+354 6998202